Hæ kæru systkin!Við erum hætt að tala saman. Við tölum kannski sitt í hvoru lagi en það vantar bara alla heild í þetta hjá okkur. Kannski er það af því að við erum í sitthvoru landinu.
En nú hefur tölvunjörðurinn Kitti búið til vettvang fyrir okkur öll (sjá mynd).
Ég mun segja frá því sem drífur á dagana í íslenskum hversdagsleika. Óli mun fjalla um danska daga og Auður um þýska. Ingunn er reynsluboltinn okkar enda þrælvanur bloggari. Hún mun bera þetta uppi.
Hæ, en flott framtak, ég verð bara að stúdera þetta, vona að ég sé að skrifa á réttum stað, mun styðja þetta framtak Kristján og er mjög glöð!!!
SvaraEyða