miðvikudagur, febrúar 22, 2006

nokkrar myndir eða myndasería










Jæja ég hef nú ekki verið duglegur í blogginu. En nú er ég að læra undir próf fyrir morgundaginn og þá er alveg tilvalið að eyða tímanum í vitleysu. Ég var í prófi áðan og það gekk sæmilega. Ég er mjög þreyttur og ósofinn en það er gaman að fylgjast með barninu. Við Ástríður getum setið tímunum saman og horft á það.
Og ef vel er að gáð þá getur maður séð ykkur systkini sín í lillu. Ólasvipurinn er þarna og Auður og Ingunn - eða hvað?
Þetta er svo gaman en líka frekar erfitt.
Heyrumst. . .

8 ummæli:

  1. ótrúlega sæt!!
    og svo lík okkur!!!+
    mér finnst fyrsta myndin alveg eins og óli bró!!

    SvaraEyða
  2. og svo kann hún að brosa! híhí!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus15:15

    Hæ hæ !
    Æðislegt fyrir ömmu að sjá nýjar myndir. ég hef bara rétt kíkt á litlu á laugardaginn, og svo lagðist ég í flensu og hef ekkert getað skoðað hana
    stolta amman

    SvaraEyða
  4. Nafnlaus18:37

    jiii hvað það er sætt að sjá svona lítið barn geyspa.
    Ég vona að ég megi kíkja bráðum aftur í heimsókn til ykkar...

    ingunn

    SvaraEyða
  5. fleiri myndir ég vil fleiri myndir!!!

    SvaraEyða
  6. fleiri myndir - ég var nú að reyna að senda þér en hotmailið þitt tekur bara ekki á móti neinu. Þú verður að fá þér alvöru mail adressu - td. gmail.com eins og óli er með (engar takmarkanir!).

    - svo er spurning hvort ég setji upp svona myndagalleríviðmót áður en litli frændi kemur í heiminn :)

    SvaraEyða
  7. Nafnlaus20:28

    mér finnst hún alveg eins og kitti, allavega á myndunum sem óli sendi mér...

    hvenær má svo kíkja á telpuna; hvað má líða lengi frá fæðingu þangað til maður má kíkja inn í tíma og ótíma í óvænta heimsókn?

    olla

    SvaraEyða
  8. vertu velkomin í heimsókn olla

    þá geturðu pikkað upp gambrann frá áramótum og 8mm filmurnar ;)

    sjáumst

    SvaraEyða