







Jæja ég hef nú ekki verið duglegur í blogginu. En nú er ég að læra undir próf fyrir morgundaginn og þá er alveg tilvalið að eyða tímanum í vitleysu. Ég var í prófi áðan og það gekk sæmilega. Ég er mjög þreyttur og ósofinn en það er gaman að fylgjast með barninu. Við Ástríður getum setið tímunum saman og horft á það.
Og ef vel er að gáð þá getur maður séð ykkur systkini sín í lillu. Ólasvipurinn er þarna og Auður og Ingunn - eða hvað?
Þetta er svo gaman en líka frekar erfitt.
Heyrumst. . .
ótrúlega sæt!!
SvaraEyðaog svo lík okkur!!!+
mér finnst fyrsta myndin alveg eins og óli bró!!
og svo kann hún að brosa! híhí!
SvaraEyðaHæ hæ !
SvaraEyðaÆðislegt fyrir ömmu að sjá nýjar myndir. ég hef bara rétt kíkt á litlu á laugardaginn, og svo lagðist ég í flensu og hef ekkert getað skoðað hana
stolta amman
jiii hvað það er sætt að sjá svona lítið barn geyspa.
SvaraEyðaÉg vona að ég megi kíkja bráðum aftur í heimsókn til ykkar...
ingunn
fleiri myndir ég vil fleiri myndir!!!
SvaraEyðafleiri myndir - ég var nú að reyna að senda þér en hotmailið þitt tekur bara ekki á móti neinu. Þú verður að fá þér alvöru mail adressu - td. gmail.com eins og óli er með (engar takmarkanir!).
SvaraEyða- svo er spurning hvort ég setji upp svona myndagalleríviðmót áður en litli frændi kemur í heiminn :)
mér finnst hún alveg eins og kitti, allavega á myndunum sem óli sendi mér...
SvaraEyðahvenær má svo kíkja á telpuna; hvað má líða lengi frá fæðingu þangað til maður má kíkja inn í tíma og ótíma í óvænta heimsókn?
olla
vertu velkomin í heimsókn olla
SvaraEyðaþá geturðu pikkað upp gambrann frá áramótum og 8mm filmurnar ;)
sjáumst