þriðjudagur, maí 30, 2006
sunnudagur, maí 28, 2006
fimmtudagur, maí 25, 2006
mánudagur, maí 22, 2006
sunnudagur, maí 21, 2006
föstudagur, maí 19, 2006
fimmtudagur, maí 18, 2006
þriðjudagur, maí 16, 2006
laugardagur, maí 13, 2006
rokk og rólegheit II
Nú er laugardagskvöld. Við ráðsettu skutluðum afa og ömmu niður í bæ af því þau ætla að pöbbarölta heim eftir partíið á Snorrabraut. Listahátíð var sett í dag eða gær og mikið um að vera í bænum. Við höldum bara áfram að skjóta á Brynhildi með myndavélinni. Óli, hvernig væri að hringja í mig. Langt síðan við höfum heyrst.
þriðjudagur, maí 09, 2006
Halló allir saman, hérna nokkrar myndir, svo sem lítið að segja um þær....... Brynhildur finnst mér annars mjög fallegt nafn og fara stúlkunni vel! Svo ætlaði ég að spyrja hvort það sé ekki í lagi að benda fólki á þessa síðu til þess að það sjái einhverjar myndir eða er þetta hugsað sem privat fjölskyldu síða? Annars líður okkur bara vel og einhvern veginn tekst okkur að komast í gegnum dagana, sem allir eru keimlíkir... Við reynum að fara á hverjum degi út, því Ara finnst gott að sofa í vagninum sínum, það er helst að mamman nenni ekki ef hún er þreytt því hún verður jú að fylgja með allan tímann og þramma um bæinn, eða garðana í kring..... En veðrið er gott og það hjálpar til að drífa sig.......
mánudagur, maí 01, 2006
1. maí
Ungfrú Brynhildur Kristjánsdóttir hélt í tilefni 1. maí fyrirlestur sem bar heitið Endalaus barátta? -tregða foreldra og skilningsleysi þegar kemur að bleyjuskiptum.
Erindið er unnið úr doktorsverkefni Brynhildar við Universitè Sorbonne en madamme Brunhild de Kristjansdottir stefnir að því að verða fyrsti og eini doktorinn undir 1 árs.
Brynhildur hefur óskað eftir samstarfi við aðila í Þýskalandi og er Ari hennar fyrsti kostur.